8
Hvar eru ákærendurnir?
Jesús fór nú til Olíufjallsins, en snemma næsta morgun var hann aftur kominn í musterið. Fólkið þyrptist að og hann settist niður og ávarpaði það. Á meðan hann var að tala, komu farísearnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar með konu sem staðin hafði verið að því að drýgja hór. Þeir stilltu henni upp í allra augsýn.
„Kennari,“ sögðu þeir við Jesú. „Þessi kona var staðin að því að drýgja hór. Lög Móse segja að slíkar konur eigi að grýta. Hvað viltu segja um það?“
Ætlun þeirra var að fá hann til að segja eitthvað sem þeir gætu ákært hann fyrir. Þá beygði Jesús sig niður og skrifaði í sandinn með fingrunum. Á meðan héldu hinir áfram að krefja hann svars. Jesús stóð upp og sagði: „Allt í lagi. Grýtið hana, en sá ykkar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum!“
Síðan kraup hann aftur niður og hélt áfram að skrifa í sandinn, en leiðtogarnir laumuðust í burtu, fyrst sá elsti og síðan einn af öðrum. Að lokum var Jesús þar einn ásamt konunni og mannfjöldanum.
10 Jesús stóð þá upp og spurði konuna: „Hvar eru þeir? Ákærði þig enginn?“
11 „Nei, herra, enginn,“ svaraði hún.
„Ég ákæri þig ekki heldur,“ sagði Jesús, „farðu og syndgaðu ekki framar.“
12 Seinna, þegar Jesús var að ávarpa mannfjöldann, sagði hann: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki staulast í myrkrinu, því ég mun lýsa honum veginn til eilífs lífs.“
13 „Þetta er lygi!“ hrópuðu farísearnir. „Þú ert alltaf að hrósa sjálfum þér.“
14 „Það er satt sem ég sagði,“ svaraði Jesús, „enda þótt ég hafi sagt þetta um sjálfan mig, því ég veit hvaðan ég kom og hvert ég fer, en það vitið þið ekki. 15 Þið dæmið mig án þess að rannsaka mál mitt fyrst. Ég mun ekki dæma ykkur strax, 16 en þótt ég gerði það, þá væri sá dómur réttlátur að öllu leyti, því faðir minn, sem sendi mig, er með mér. 17 Lög ykkar segja að sé vitnisburður tveggja manna samhljóða, sé hann tekinn gildur. 18 Ég er annað vitnið og hitt er faðir minn sem sendi mig.“
19 „Hvar er faðir þinn?“ spurðu þeir.
„Þið þekkið mig ekki og því þekkið þið ekki heldur föður minn,“ svaraði Jesús. „Ef þið þekktuð mig, þá mynduð þið einnig þekkja hann.“ 20 Jesús mælti þetta hjá fjárhirslunni í musterinu. En hann var ekki handtekinn, því að tími hans var enn ekki kominn.
Trúuðum fjölgar og rökræður aukast
21 Seinna sagði Jesús aftur við faríseana: „Ég fer burt og þið munuð leita mín og deyja í syndum ykkar, því að þið getið alls ekki komist þangað sem ég fer.“
22 Þá sögðu þeir: „Ætlar hann að fremja sjálfsmorð? Hvað á hann við með þessu: Þið getið ekki komist þangað sem ég fer?“
23 Jesús sagði því við þá: „Þið komið að neðan, en ég að ofan. Þið eruð af þessum heimi en ekki ég, 24 og því sagði ég að þið mynduð deyja í syndum ykkar, aðskildir frá Guði. Ef þið trúið ekki að ég sé Kristur, sonur Guðs, þá munuð þið deyja í syndum ykkar.“
25 „Segðu okkur hver þú ert,“ sögðu þeir.
„Ég hef margsinnis sagt ykkur það,“ svaraði hann. 26 „Ég gæti dæmt ykkur fyrir margt og frætt ykkur um margt, en ég vil það ekki, því ég segi aðeins það sem sá er sendi mig biður mig að segja og hann er sannleikurinn.“ 27 Þeir skildu ekki enn að hann var að tala við þá um Guð.
28 Jesús sagði því: „Þegar þið hafið krossfest mig, þá munuð þið skilja að ég er Kristur og að það sem ég hef talað, er ekki frá eigin brjósti heldur frá föðurnum. 29 Sá sem sendi mig er með mér – hann hefur ekki yfirgefið mig því ég geri aðeins það sem honum er þóknanlegt.“
30-31  Eftir þessi orð Jesú, trúðu margir leiðtoganna að hann væri Kristur.
Jesús sagði við þá: „Ef þið farið eftir orðum mínum, þá eruð þið sannir lærisveinar mínir, 32 og þið munuð þekkja sannleikann og sannleikurinn mun gera ykkur frjálsa.“
33 „En við erum afkomendur Abrahams,“ sögðu þeir, „og við höfum aldrei verið þrælar nokkurs manns. Hvað áttu við með orðinu „frjáls“?“
34 „Þið eruð allir þrælar syndarinnar,“ svaraði Jesús. 35 „Þrælar hafa engin réttindi, en sonurinn hefur öll réttindi. 36 Ef sonurinn gerir ykkur frjálsa verðið þið sannarlega frjálsir. 37 Ég veit vel að þið eruð afkomendur Abrahams en samt reyna sumir ykkar að lífláta mig, af því að orð mín fá ekki rúm hjá ykkur. 38 Ég hef áður sagt ykkur hvað ég sá þegar ég var hjá föður mínum, en þið viljið aðeins fara að ráðum föður ykkar.“
39 „Abraham er faðir okkar,“ svöruðu þeir.
„Nei!“ sagði Jesús, „ef svo væri, færuð þið að ráðum hans. 40 En nú viljið þið hins vegar lífláta mig, einungis vegna þess að ég sagði ykkur sannleikann, sem ég heyrði hjá Guði – slíkt mundi Abraham aldrei gera! 41 Þegar þið gerið slíka hluti, þá eruð þið að hlýðnast ykkar raunverulega föður.“
„Við erum ekki óskilgetnir,“ svöruðu þeir. „Guð er okkar eini og sanni faðir.“
42 „Ef svo væri,“ sagði Jesús, „þá munduð þið elska mig, því að hingað kom ég frá Guði. Það var hann sem sendi mig. Ég er ekki hér á eigin vegum. 43 Hvers vegna skiljið þið mig ekki? Jú, það er vegna þess að þið eruð hindraðir af Satan. 44 Hann er faðir ykkar og þið njótið þess að framkvæma illvirki hans. Hann var morðingi frá öndverðu og hataði sannleikann – það finnst ekki snefill af sannleika í honum. Honum er fullkomlega eðlilegt að ljúga. Hann er faðir lyginnar, 45 og það er einmitt ástæða þess að þið trúið mér ekki þegar ég segi ykkur sannleikann.
46 Getur nokkur ykkar sannað á mig hina minnstu synd? (Nei, enginn!) Nú segi ég ykkur sannleikann, en hvers vegna trúið þið mér ekki? 47 Sá sem á Guð að föður, tekur með gleði á móti orði hans. Ef svo er ekki með ykkur, þá sýnir það að þið eruð ekki börn hans.“
48 „Þú ert Samverji, útlendingur og djöfull!“ hvæstu leiðtogarnir. „Það er langt síðan við sögðum að í þér væri illur andi!“ 49 „Nei,“ svaraði Jesús, „það er enginn illur andi í mér, því ég heiðra föður minn og þess vegna lítilsvirðið þið mig. 50 Ég hef engan áhuga á að upphefja sjálfan mig, en Guð vill upphefja mig og hann mun dæma þá sem hafna mér.
51 Ég segi ykkur satt: Sá sem hlýðir orðum mínum, mun aldrei að eilífu sjá dauðann.“
52 „Nú vitum við að þú hefur illan anda,“ sögðu leiðtogarnir, „því að Abraham dó og sama er að segja um spámennina, en nú segir þú að sá sem hlýði þér, muni aldrei deyja! 53 Ertu þá meiri en Abraham forfaðir okkar? Því að hann dó. Og ertu meiri en spámennirnir sem dóu? Hver heldurðu eiginlega að þú sért?“ 54 Þá svaraði Jesús: „Það væri ekki til neins fyrir mig að hrósa mér, en það er faðir minn – sem þið haldið fram að sé ykkar Guð – sem segir öll þessi yndislegu orð um mig, 55 en hann þekkið þið ekki. Ég þekki hann! Ef ég segði að ég þekkti hann ekki, þá væri ég að ljúga eins og þið! Þegar ég segi að ég þekki hann og hlýði honum í öllu, þá er ég að segja sannleikann. 56 Abraham faðir ykkar hlakkaði til að sjá minn dag. Hann vissi að ég var að koma og það gladdi hann.“
57 Þá sögðu leiðtogarnir: „Þú ert ekki einu sinni orðinn fimmtugur, en samt segist þú hafa séð Abraham!“
58 „Ég segi ykkur satt,“ svaraði Jesús, „ég var til þegar Abraham fæddist!“
59 Þegar leiðtogarnir heyrðu þetta, tóku þeir upp steina til að grýta hann. En þeir misstu sjónar af honum, því hann gekk burt frá þeim og yfirgaf musterið.