Formáli
„Ágúst, þurftir þú ekki að vinna nein heimaverkefni?“ spurði Kolbrún. Inni í herbergi hafði ég verið að lesa Biblíuna hennar í á aðra klukkustund. Kolbrún var ekki alveg viss um hvað henni fyndist um þetta. Hún hafði vanist því að Biblían væri spari eða við „Brjótið glerið í neyð“ aðstæður. Núna var ég að lesa Biblíuna hennar af áfergju og hún óttaðist að ég myndi beygla blaðsíðurnar.
Nokkrum dögum áður hafði ég gefist Kristi og strax vaknaði löngun til að lesa Biblíuna. Ég hafði reynt að lesa hana áður en það gekk illa. Núna, eftir að hafa eignast lifandi trú á Jesú, vaknaði þorsti eftir orði Guðs og ég fann hvernig lesturinn nærði nýtt líf sem hafði kviknað innra með mér.
Marteinn Lúther sagði: „Ég myndi ráðleggja engum að senda barn sitt þangað sem Heilög ritning er ekki í öndvegi. Sérhver stofnun þar sem karlar og konur fást ekki stöðugt við orð Guðs hlýtur að spillast.“
Marteinn og fleiri siðbótarmenn vissu að ef strákar og stelpur gætu lesið Biblíuna á eigin spýtur myndi heimurinn breytast, og þeir höfðu rétt fyrir sér. Sagan sýnir að fátt hefur haft meiri áhrif heldur en einmitt þessi sannfæring þeirra og hvernig þeir fylgdu því eftir með því að þýða og gera Biblíuna aðgengilega fyrir alla.
Þessi tilraunaútgáfa af Markúsarguðspjalli hefur þann megintilgang að auðvelda ungu fólki á Íslandi að lesa og skilja orð Guðs á sínu móðurmáli. Ef vel tekst til viljum við þýða fleiri bækur og halda þannig áfram eins og Guð gefur okkur náð til.
Við vildum einnig gefa út texta sem leyfir öðrum að afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi. Sjá nánar https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Hugmyndin er að sýna fram á að hægt sé á stuttum tíma að gera góða þýðingu af Markúsarguðspjalli. Fyrstu fjórir kaflarnir voru tilbúnir 26. maí 2026 og útgáfan send í prentun 20. júni, innan við mánuði síðar.
Ágúst Valgarð Ólafsso
Selfoss, 2. júní 2026
Hjálpleg aðferð til þess að lesa Biblíuna á hverjum degi
Öll Biblían er orð Guðs, því að hún er innblásin af Heilögum anda. Hún kennir okkur sannleikann og bendir okkur á það sem rangt er í lífi okkar. Hún leiðréttir okkur og hjálpar okkur að gera það sem rétt er. Hún er verkfæri Guðs til að móta líf okkar og gera okkur hæf til að vinna það sem gott er. 2Tím 3:16-17
Til þess að við upplifum máttinn af orði Guðs er mikilvægt að við ekki aðeins lesum Biblíuna, heldur hugleiðum og notum einnig það sem við lesum. Við notum þessi 4 þrep til þess:
Lesa – Skoða – Nota – Biðja
1. Lestu orðið
a. Veldu bók í Biblíunni til þess að byrja að lesa, helst í Nýja testamentinu. Ef þú ert ekki kunnug/ur Biblíunni er gott að byrja á Markúsarguðspjalli.
b. Ekki lesa textann tilviljunarkennt heldur skipulega til þess að þú skiljir samhengi versana og fáir góða og jafna næringu. Lestu hluta af textanum á hverjum degi og haltu áfram næsta dag þar sem frá var horfið.
c. Það er gott að lesa stóra texta úr Biblíunni, en að gefa sér tíma til þess að hugleiða nokkur vers í senn og nota þau er mun betra langtímaaðferð.
„Hæg og skipuleg lesning gefur nákvæma leiðsögn.“
2. Skoðaðu orðið
a. Til hvaða manneskju er það skrifað? Af hverju? Um hvað snýst það?
b. Hvað held ég að það merki? Hvernig myndi ég útskýra það með mínum eigin orðum?
c. Hvað læri ég um Guð: Loforð hans og eiginleika?
d. Hvað læri ég um hvernig ég eigi að lifa lífinu: hvaða boð eða dæmi eru til að fylgja?
e. Hvaða sannindi skera sig úr fyrir mig persónulega og hvernig styrkist trú mín með þessum texta?
3. Notaðu orðið
a. Hvernig tengist þessi texti lífi mínu núna?
b. Hvað kenna þessi sannindi mér, hvaða synd finn ég mig kallaða/n til þess að iðrast fyrir og hvaða skref þarf ég að taka til þess að hlýða sannleikanum í þessum texta?
c. Hvað mun ég byrja að gera og hverju mun ég hætta til þess að nota þennan texta í lífi mínu?
4. Biddu orðið
a. Talaðu við Guð um það sem þú hefur lesið. Biddu hann um vísdóm til þess að hjálpa þér að skilja og um styrk og hugrekki til þess að lifa sannleikann út með lífi þínu.
b. Notaðu það sem sem þú hefur lesið til þess að biðja fyrir sjálfri/um þér, fjölskyldu þinni, kirkjunni, fólki sem þekkir Jesú ekki ennþá og heiminum.
Til þess að fá sem mest út úr tíma þínum er gott að taka frá svipaðan tíma á hverjum degi. Þar getur þú haft glósubók og penna til þess að skrifa niður hvað sem er hjálplegt að muna og hugleiða: lykilvers, hugleiðingar, hugsanir fyrir daginn, hvatningar Heilags anda eða markmið.
Um þýðinguna
Verkefnið er á vegum Every Nation Ísland, sjá www.everynation.is
Vefsvæði verkefnisins er 316.is/biblian
Öll aðstoð við rýni, ábendingar og endurgjöf á textanum er vel þegin. Textinn verður aðgengilegur á ebible.org jafnóðum og hann er þýddur. Hver sem er getur skráð sig á póstlistann á vefsvæði verkefnisins til að fá fréttir af verkefninu, eins og hvaða kaflar eru tilbúnir til yfirlestrar, og sent svo inn endurgjöf.
Þýtt var úr Scriveners Textus Receptus 1894.
Þóra Ingvarsdóttir leiddi vinnu við þýðingu en Ágúst Valgarð Ólafsson sá um verkefnisstjórn. Þeir sem sendu inn endurgjöf og rýni fá þakkir. Sérstakar þakkir fær Michael Johnson frá ebible.org fyrir ómetanlega aðstoð.
Þeim sem vilja vita meira um verkefnið, eins og hvaða þýðingarstíll var hafður að leiðarljósi, er bent á að hafa samband á vefsvæði verkefnisins.