101
1 Ég vil syngja um réttlætið og miskunnsemina. Ég vil lofsyngja þér, ó Guð!
2 Ég, konungurinn, vil kappkosta að lifa heiðarlega og ganga um heimili mitt í grandvarleik – hjálpaðu mér til þess!
3 Gefðu mér að forðast allt sem er gróft og ljótt – að fyrirlíta hið illa.
4 Já, ég vil ekki vera sjálfselskur og vondur.
5 Ég umber ekki þá sem baktala nágranna sinn, og hroka og dramb mun ég ekki þola.
6 Ég leita uppi réttláta menn í landinu og kalla þá til starfa, að þeir búi hjá mér, – þeir einir sem grandvarir eru.
7 Svikara og lygara þoli ég ekki í mínum húsum.
8 Ég þagga niður í illmennunum í landinu og útrými úr borginni öllum óguðlegum.