70
1-2 Bjargaðu mér, ó Guð! Flýttu þér Drottinn, að hjálpa mér!
3-4 Óvinir mínir sækjast eftir lífi mínu og njóta þess að kvelja mig. Rektu þá burt með skömm! Stöðvaðu þá! Láttu þá ekki hæða mig og spotta.
5 Allir þeir sem leita Guðs skulu fagna og gleðjast. Þeir sem elska hjálpræði þitt hrópi: „Lofaður sé Guð!“
6 En ég er í miklum vanda ó, Guð! Flýttu þér að hjálpa mér! Þú ert sá eini sem getur bjargað. Drottinn minn, láttu það ekki dragast!