7
Skömmu síðar komu til hans farísear og nokkrir lögmálskennarar frá Jerúsalem.+ Þeim mislíkaði mjög að sjá að nokkrir lærisveina hans borðuðu brauð án þess að þvo sér um hendurnar,+ vegna þess að í samræmi við lög forfeðra sinna borðuðu farísearnir og allir gyðingarnir ekki nema þeir hefðu fyrst þvegið sér um hendurnar.+ Þeir borðuðu heldur ekki eftir að þeir komu heim af markaðinum án þess að þvo sér um hendurnar, og höfðu það líka fyrir reglu að þvo vel bolla, ílát og borð.+ + „Af hverju fylgja lærisveinar þínir ekki lögum forfeðra okkar?“ spurðu farísearnir og kennararnir Jesú. „Þeir borða án þess að þvo sér um hendurnar!“+ „Jesaja spáði rétt fyrir um ykkur, hræsnararnir ykkar,“ svaraði Jesús. „Hann skrifaði:
Mennirnir segjast heiðra mig en hjörtu þeirra eru langt frá mér.+
Lof þeirra er innantómt og þeir kenna það eitt sem frá mönnunum er komið.+ Þið hafið snúið ykkur frá fyrirmælum Guðs og skipt þeim út fyrir mannlegar hefðir eins og bollaþvott, og annað í þeim dúr.+
Þið hafnið fyrirmælum Guðs og fylgið í staðinn ykkar eigin hefðum.+ 10 Móse sagði
„Þú skalt heiðra föður þinn og móður þína“ og „Sá sem bölvar föður sínum eða móður á skilið að deyja“.+
11 En þið segið „Ef maður segir við föður sína eða móður að eitthvað sé „korban“ (þ.e.a.s. gjöf helguð Guði) sem faðir sinn eða móðir hefðu annars átt að fá,+ + 12 er hann leystur undan þeirri skyldu sinni að gera neitt fyrir þau.“+ 13 Þið ógildið orð Guðs með hefðum ykkar, þessu dæmi og mörgum öðrum.“+ +
14 Hann kallaði fólkið í kringum sig og sagði: „Hlustið öll vel!+ 15 Maður verður ekki óhreinn af því sem kemur að utan og inn, heldur af því sem kemur að innan og út.+ + 16 Hugsið vel um það sem þið hafið heyrt.“ 17 Þegar þeir voru komnir einir inn í hús saman spurðu lærisveinarnir Jesú út í dæmisöguna.+ 18 „Skiljið þið þetta ekki heldur?“ svaraði hann. „Skiljið þið ekki að það sem maðurinn tekur inn utan frá getur ekki óhreinkað hann?+ 19 Hann tekur það nefnilega ekki inn í hjartað, heldur magann, og þaðan fer það síðan út úr honum aftur eins og allur úrgangur.+ + 20 En það er það sem kemur innan frá sem óhreinkar manninn.+ 21 Allar verstu hugsanirnar – framhjáhald, kynferðislegar syndir, morð,+ 22 þjófnaður, græðgi, svik, stjórnleysi, öfund, guðlast, hroki og öll óskynsemi –+ 23 þessi illska byrjar öll í hjarta mannsins. Þetta kemur allt saman innan frá, og það er það sem óhreinkar manninn.“+ +
24 Stuttu seinna fór Jesús af stað til Týrusar og Sídon. Hann reyndi að leyna því að hann væri kominn til svæðisins, en það spurðist út.+ 25 Kona á svæðinu átti unga dóttur sem var haldin óhreinum anda. Þegar hún frétti að Jesús væri kominn fór hún til hans og féll á kné fyrir framan hann.+ 26 Konan, sem var Grikki frá sýrlensku Fönikíu, bað hann að reka óhreina andann út úr dóttur sinni.+ 27 „Það er eðlilegast að börnin fái fyrst að borða,“ sagði hann við hana, „og að hundarnir fái síðan leifarnar þeirra, en ekki öfugt.“+ + 28 „Jú,“ svaraði konan, „en hundarnir fá að sitja undir borðinu og éta það sem börnin missa niður.“+ 29 „Vel svarað,“ sagði Jesús. „Farðu heim, því djöfullinn er farinn út úr dóttur þinni.“+ 30 Og þegar hún kom heim lá dóttir hennar þar sofandi, og djöfullinn var farinn úr henni.+
31 Jesús hélt síðan af stað frá Týrus og Sídon í átt að Galíleuvatni eftir ströndum Dekapólissvæðisins.+ 32 Þar kom fólk til hans með mann sem glímdi við heyrnarleysi og málörðugleika, og bað Jesú um að snerta hann.+ 33 Jesús fór með manninn afsíðis. Þar setti hann fingurna í eyru mannsins, hrækti og snerti svo tungu mannsins.+ + 34 Hann horfði upp til himins, andvarpaði og sagði svo við manninn „Effata!“ (sem þýðir „opnastu“).+ 35 Við það opnuðust eyru mannsins, og tunga hans losnaði, og hann gat talað eðlilega.+ 36 Jesús brýndi fyrir þeim að segja engum frá þessu. En því meira sem hann brýndi þetta fyrir þeim, því minna gátu þau þagað yfir því sem þau höfðu séð hann gera.+ 37 „Hann gerir ótrúlegustu hluti!“ sögðu þau, furðu lostin. „Hjá honum fá heyrnarlausir heyrn og mállausir mál.“+ +
+ 7:1 Matt 15:1 + 7:2 Matt 15:2 + 7:3 Matt 15:2 + 7:4 Matt 15:2 + 7:4 Farísear höfðu bætt við lögmálið með mörgum hefðum (t.d. handaþvottur fyrir mat) til manneskja gæti talist „hrein.“ Þetta var ekki boðorð Móse heldur manngerð regla. + 7:5 Matt 15:2 + 7:6 Matt 15:7-8; Jes 29:13 + 7:7 Jes 29:13 + 7:8 Matt 15:3 + 7:9 Matt 15:3 + 7:10 2Mós 20:12; 2Mós 21:17; 3Mós 20:9; 5Mós 5:16 + 7:11 Matt 15:5 + 7:11 „Korban“ þýðir gjöf helguð Guði. Farísear leyfðu að lofa Guði peninga sem hefði átt að hjálpa fore. Þetta braut hinsvegar boðorðið um að heiðra foreldra sína. + 7:12 Matt 15:5-6 + 7:13 Matt 15:6 + 7:13 Jesús gagnrýnir að manngerðar hefðir (ekki boðorð Guðs) komu í veg fyrir að elska og heiðra foreldra sína. Þetta sýnir hvernig reglur geta orðið mikilvægari en hjarta miskunnar. + 7:14 Matt 15:10 + 7:15 Matt 15:11 + 7:15 Jesús breytir skilningi á „óhreinleika.“ Það er ekki matur eða þvottur heldur innra hjarta og hugsanir sem óhreinka manneskju. + 7:17 Matt 15:15 + 7:18 Matt 15:16 + 7:19 Matt 15:17 + 7:19 Markús útskýrir að Jesús hreinsaði allan mat. Þetta var stórt skref fyrir kristna Gyðinga: enginn matur er lengur „óhreinn.“ + 7:20 Matt 15:18 + 7:21 Matt 5:21-22; Matt 15:19 + 7:22 Matt 15:19 + 7:23 Matt 15:20 + 7:23 Jesús listar syndir sem koma úr hjartanu. Þetta sýnir að vandamálið er innra, ekki ytra (t.d. matur eða þvottur). + 7:24 Matt 15:21 + 7:25 Matt 15:22 + 7:26 Matt 15:22 + 7:27 Matt 15:26 + 7:27 „Börn“ = Ísraelsmenn, „hundar“ = heiðingar (algengt myndmál). Jesús prófar trú hennar og leggur áherslu á forgang Gyðinga, en hann opnar síðan fyrir heiðingja. + 7:28 Matt 15:27 + 7:29 Matt 15:28 + 7:30 Matt 15:28 + 7:31 Matt 15:29 + 7:32 Mark 5:23 + 7:33 Mark 8:23 + 7:33 Þetta var algeng aðferð til að lækna á þessum tíma, en Jesús notar það til að sýna persónulegt vald. + 7:34 Mark 8:12 + 7:35 Mark 8:25 + 7:36 Matt 9:30; Mark 1:44 + 7:37 Jes 35:5-6 + 7:37 „Hann gerir ótrúlegustu hluti“ — orðin minna á sköpun Guðs (1Mós 1:31). Jesús uppfyllir spádóma um að Messías lækni heyrnarlausa og mállausa (Jes 35).